04júlí

Rólegheit í kvöld!!!


Jæja, látum okkur nú sjá. Hvað hefur gerst frá síðustu færslu??? Jú, daman er búin að vera að vinna og vinna svo aðeins meira.
Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma götupartýinu góða. Það var haldið, þrátt fyrir að ekki færi mikið fyrir hlýindum. En það var þurrt, það var frekar fámennt, en góðmennt og mikið stuð. Það var borðað, drukkið, farið í leiki, sungið og trallað. Bara gaman. Um miðnætti var svo arkað á Láruna og fór Solla þar fremst í flokki með risatrjágrein úr garðinum sínum. Á Lárunni hélt djammið áfram, dansað og djammað fram eftir nóttu.
Ég, ásamt mömmu, Eygló og Sollu, skellti mér á opnunarhátíð Jazzhátíðarinnar, en hún var haldin í aðkomugöngum stöðvarhúss Fljótsdalsstöðvar. Þar var verið að frumflytja verkið Draumar eftir hann Einar Braga og búið var að semja dansverk við það líka. Þessir tónleikar voru vægast sagt stórkostlegir. Tær snilld.
Síðastliðinn þriðjudag skellti daman sér svo í leikhús á Egilsstöðum þar sem Frú Norma, í samstarfi við Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Leikfélag Seyðisfjarðar, frumsýndu leikritið Ventlasvín eftir Guðjón Sigvaldason. Þessi sýning var allt öðruvísi en allar aðrar leiksýningar sem maður hefur séð, en hún var alveg hrikalega skemmtileg. Ég hló hreinlega allan tímann.
Í kvöld eru annars bara huggulegheit, það voru keyptar pizzur á Skaftfelli og ég, Eygló systir og fjölskylda fórum út á Landamót og átum pizzu og svo súkkulaðibúðing í eftirrétt. Sem sagt sukkkvöld dauðans.
Á morgun er svo planið að fara heim til Sollu, sem liggur ökklabrotin á sjúkrahúsinu á Akureyri, og taka húsið hennar í gegn áður en hún kemur heim. En vonandi sleppur hún heim strax eftir helgina.
Um næstu helgi er svo Ceilidhbandið að fara að spila á ættarmóti á Skjöldólfsstöðum. Það hefur verið mjög lítið um æfingar undanfarið og þar sem Eydís er að vinna flest kvöldin í næstu viku, þá gefst ekki mikill tími til æfinga. En við reynum bara að gera það besta úr þessu. Við ættum að ná tveimur æfingum hér heima og svo einni á Skjöldólfsstöðum á laugardaginn. Ég hef fulla trú á því að þetta verði í fínu lagi.
Annars er bara allt við það sama. Blessað sumarið lætur enn bíða eftir sér. Veðurfræðingarnir eru eitthvað að spá góðu veðri næstu daga og vonandi stenst það.  


Við endum svo þessa færslu á broti úr verkinu Draumar eftir Einar Braga. Farið inn á
http://www.youtube.com/watch?v=N-0xkogebKU

Knús knús,
Eydís

04. júlí 2008 klukkan 23:27
Eydís Bára Jóhannsdóttir
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Bára Jóhannsdóttir
  • Stađur: Seyđisfjörđur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Kennari
  • Um mig: Ég er bara ósköp venjulegur einstaklingur frá hinum fagra firđi Seyđisfirđi. Ţar hef ég búiđ megniđ af minni ćvi. Ég flutti til Skotlands í júní 2007, en hef nú snúiđ aftur í fjörđinn fagra og starfa í skólanum ţar.
  • Annađ: Viđ ţurfum ekki ađ eyđa háum upphćđum í gjafir vegna ţess ađ vináttan er besta gjöfin.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan