24mars
Páskafríið senn á enda!
Halló allir!
Jæja, þá fer páskafríinu senn að ljúka og ég vona að allir hafi átt ánægjulega páska. Ég veit það að mínir páskar voru mjög ánægjulegir. Á skírdag söng maður í fermingarmessu og smellti sér svo í tvær fermingarveislur, sem var mjög fínt. Á föstudaginn langa var svo ferðinni heitið í Einarsstaði, þar sem hún Solla var með bústað á leigu. Þar var spilað, drukkið rauðvín, eldaður kjúlli og tekið smá maraþon í Lífmyndum, þar sem horft var á Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf. Ekki slæmt það. Á laugardeginum var haldið aftur í fjörðinn fagra þar sem undirrituð varð að fara á páskabingó. En ekki hafði ég nú mikið út úr því bingói. Kannski Jóa Hansa fjölskylda sé eitthvað að missa touchið, þar sem ekkert okkar fór heim með vinning og það hefur nú ekki gerst mjög oft í gegnum tíðina. Seinna um kvöldið fór maður svo aftur í Herðubreið þar sem Bjössi Hall var að spila og það var aldeilis ljómandi fínt. Á páskadag var svo sungið í helgistund á sjúkrahúsinu og síðan í kirkjunni og svo var restinni af deginum eytt hjá Eygló systur og co. Þar voru snæddar kökur, svínahamborgarhryggur, páskaegg og ég veit ekki hvað og hvað. Svo tók fjölskyldan Pressumaraþon, þar sem horft var á alla Pressuþættina. Að því maraþoni loknu stökk Eydís yfir á Láruna og söng smá í Karaoke, en þar var nú mjög fámennt, en góðmennt. Svo verður bara að koma í ljós hvað gert verður í dag. Ætlunin var kannski að smella sér í fjallið, en það hefur ekki enn verið tekið ákvörðun um það.
Svo er það bara vinnan aftur á morgun og þá dettur maður aftur inn í sína rútínu.
Segjum þetta gott í bili elskurnar og stórt knús til ykkar allra,
Eydís
