29febrúar
Hljómsveitaræfing í kvöld!
Jæja gott fólk!
Eitthvað er nú verið að rukka mann um bloggfærslu og ætli það sé nú ekki best að hlýða svona einu sinni. Hér í firðinum fagra er bara alltaf jafn yndislegt. Nú er ég búin að fara á hljómsveitaræfingu og er reyndar að fara á æfingu núna á eftir, ekki leiðinlegt. Svo fer vonandi leikfélagið að fara í gang og þá er ég í góðum málum, tralalalala.
Ein stórfréttin sú að Eygló systir og hennar family er flutt á Seyðisfjörð líka. JIBBÝ.!!! Reyndar eru bara Eygló og börnin komin, en hennar ektamaki kemur síðar. Þannig að hér er bara allt að gerast.
Eydís hefur svo tekið þá ákvörðun að halda upp á 30 ára afmælið sitt þetta árið. Veislan verður reyndar tveimur árum of seint, en betra er seint en aldrei eins og sagt er. Vegna óviðráðanlegra orsaka var ekki hægt að halda upp á herlegheitin fyrir tveimur árum, því hefur verið ákveðið að gera það núna.
Jæja þetta voru nokkrar línur úr mínu lífi.
Ég óska ykkur öllum góðrar helgar,
Eydís
p.s. við endum á einu afbragðsgóðu lagi sem tók þátt í söngvakeppninni á dögunum. Farið inn á:
