14október
Loksins komin međ netiđ
Jæja gott fólk!
Þá er maður loksins kominn með internetið heima og aldrei að vita nema maður hendi oftar inn bloggfærslum (ég lofa samt engu).
Það er nú ósköp lítið að frétta héðan úr Skotlandinu, maður bara vinnur og sefur og svo eru helgarfríin búin áður en maður veit af.
Við Hrönn frænka drifum okkur í bréfaskriftir í vikunni. Það er nefninlega þannig að langafabróðir okkar flutti til Skotlands snemma á síðustu öld og afkomendur hans búa hér í Skotlandi. Við ákváðum (eða kannski öllu heldur mæður okkar ákváðu
) að reyna að komast í samband við þessa ættingja og við sendum bréf til allra Gudmundsson sem við fundum og sendum bréf til þeirra. Það verður forvitnilegt að sjá hvort maður heyri frá einhverjum þeirra.
Annars var Eydís alveg hrikalega þjóðleg (þ.e. íslensk ekki skosk) í eldamennskunni í gær og eldaði íslenska kjötsúpu handa sér og sínum heittelskaða. Ég fékk reyndar ekki íslenskt lambakjöt í súpuna en mikið hrikalega var gott að fá kjötsúpu, hún klikkar aldrei skal ég segja ykkur.
Það er sem sagt bara allt í gúddí hérna og við bæði bara ánægð í vinnunum okkar.
Segjum þetta gott í bili,
þangað til næst,
knús og kossar til allra,
Eydís