Helgin liðin
Þá er helgin liðin og við erum á leiðinni upp til Aberdeen. Við vorum bara orðin svo þreytt á keyrslunni að við ákváðum að stoppa í Perth og gista þar. Við eyddum sem sagt helginni í Wrexham og höfðum það mjög gott þar. Hann Jonny þurfti að sækja dót bæði í Wrexham og Chester og það var nú lítið mál að komast til þessara bæja, en það var nú töluvert erfiðara að finna nákvæmlega þá staði sem við þurftum að fara á. Ég held að við höfum keyrt ansi marga hringi og alveg pottþétt ekki farið auðveldustu leiðirnar að þessum stöðum.
Við yfirgáfum svo Wrexham í morgun og maður lifandi ég hélt bara hreinlega að það gæti ekki rignt svona mikið. Ég lenti í mikilli rigningu í Bergen hér forðum daga, nánar tiltekið sumarið 1994, en ég held bara hreinlega að rigningin í morgun hafi slegið henni við. Það var eiginlega ekki eins og hellt væri úr fötu, heldur einhverju miklu miklu stærra íláti en fötu
Við höfum tekið eitthvað lítið af myndum (erum bara alltaf að keyra) en ég mun reyna að henda einhverjum myndum inn á bloggið svona annað slagið. Það verður reyndar ekki fyrr en ég finn snúruna svo ég geti tæmt myndavélina. Ég hef bara ekki hugmynd um hvar ég hef sett hana þegar ég vara að pakka (vona bara að hún hafi komið með út).
En sem sagt á morgun ætlum við að fara að athuga með húsnæði og vinnu og við erum með gott fólk að hjálpa okkur í því stússi.
Læt ykkur bráðum heyra meira frá mér til að segja frá stöðu mála.
Bless í bili,
Eydís
p.s. Ef þið eruð að ferðast á bíl, þá vil ég benda ykkur á alveg hreint brilliant síðu sem heitir mappy.com þar getið þið sett inn ákvörðunarstaði sem þið ætlið á og þið getið prentað út nákvæmar leiðir, hvar á að taka beygjur o.s.frv. Miklu betra en að vera með eitthvað kort sem maður getur aldrei brotið saman. Það eru náttúrulega ekki öll lönd þarna inni en einhver slatti samt.
