Loksins nýtt blogg!


Jæja, kannski það sé kominn tími til að henda inn nokkrum línum eftir nokkurra mánaða bloggpásu (en maður er búinn að fá hint frá nokkrum um að þetta gangi víst ekki lengur). Það er nú bara þannig að það er búið að vera gjörsamlega brjálað að gera hjá dömunni og lítill tími gefist til að henda inn línu.
Kristín frænka vildi fá að heyra eitthvað frá húsinu góða, Landamótum. En það er skemmst frá því að segja að þetta er bara yndislegasta hús í heimi og hér líður mér vel. Ég er búin að komast að því að þó að það sé lítið, þá er það nógu stórt til að halda kennarapartý, en það var prufukeyrt um síðustu helgi.
Sumarið gjörsamlega flaug frá manni. Ég var að vinna bæði í bankanum og á Skaftfelli, þannig að það var ekkert sumarfrí tekið í sumar. Ég verð nú að viðurkenna það að ég mæli ekki með því að taka ekkert frí, en ég er búin að ákveða það að vinna ekki svona mikið næsta sumar. Ég er farin að bíða spennt eftir jólafríinu.
Svo byrjaði maður náttúrulega í skólanum seinni partinn í ágúst og þar er sko líka meira en nóg að gera í kennslu, undirbúningi og ýmsu sem daman er búin að taka að sér. Já og fyrir utan það er ég komin í stjórn í Kennarasambandi Austurlands, þannig að það verður örugglega lítið um dauðann tíma. En þannig líður mér líka vel, þegar ég hef nóg fyrir stafni. Fyrir utan vinnuna er ég svo í Ceilidh-bandinu mínu, svo bíð ég eftir því að leikfélagið fari í gang. Ég er ekki enn búin að ákveða hvort að ég eigi að vera í kórnum í vetur, en það verður bara að koma í ljós.
Þrátt fyrir allar þessar annir í vinnu og félagslífi brá daman sér í borgina með Eygló og co. eina helgina og í bústað norður í Kjarnaskóg í góðra vina hópi og það var nú ekki leiðinlegt. Það var ágætt að breyta aðeins til og komast aðeins úr firðinum fagra svona helgi og helgi, þar sem ekki gafst tími til þess í sumar. 

Jæja góðir hálsar og aðrir hálsar, við segjum þetta gott í bili og það verður bara að koma í ljós hvort að það líður svona langur tími fram að næsta bloggi. Ég get ekki lofað neinu.
 

Við endum svo á lagi sem vekur upp gamlar minningar. Njótið vel
http://www.youtube.com/watch?v=wPOhyAEN0J8  

Knús og kossar úr firðinum fagra,
Eydís 
23. september 2008 klukkan 22:03
Eydís Bára Jóhannsdóttir
Kristín skrifar ...
þetta líkar mér, bara strax komið blogg:) Gott að þér líður svona vel í húsinu góða enda ekki við öðru að búast. Stelpan er á leiðinni í sveitasæluna svo maður rekst vonandi á þig:)
24. september 2008 klukkan 04:22
Sirrý skrifar ...
...hæhæ, loksins eitthvað að lesa, ég kíkji sko reglulega. Ég hlakka líka til þegar leikfélagið byrjar, ætla sko að vera með aftur!

Sjáumst á röltinu eða kannski í "félagsmiðstöðinni" Lárunni... :)
25. september 2008 klukkan 15:38

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Bára Jóhannsdóttir
  • Staður: Seyðisfjörður
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Kennari
  • Um mig: Ég er bara ósköp venjulegur einstaklingur frá hinum fagra firði Seyðisfirði. Þar hef ég búið megnið af minni ævi. Ég flutti til Skotlands í júní 2007, en hef nú snúið aftur í fjörðinn fagra og starfa í skólanum þar.
  • Annað: Við þurfum ekki að eyða háum upphæðum í gjafir vegna þess að vináttan er besta gjöfin.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan