Að lokinni Akureyrarferð!!!
Þá er maður kominn heim aftur eftir aðra helgina á Akureyri í röð. Í þetta skiptið var ég á ferð með kennurum Seyðisfjarðarskóla þar sem við sóttum ráðstefnu. En það var nú eitthvað fleira gert líka eins og gengur og gerist í svona ferðum. Á föstudagskvöldinu skellti ég mér í leikhús ásamt þeim Kötu, Jóhönnu og Unni. Við fórum að sjá leikritið Dubbeldusch og var það hin besta skemmtun. Á laugardaginn kíkti ég í heimsókn til Sigrúnar minnar, en bumbubúinn hennar er ekki enn kominn í heiminn, þrátt fyrir að Sigrún hafi lofað mér því að ég fengi að sjá lítið barn seinni helgina mína á Akureyri. En svona er þetta og litla krílið kemur að sjálfsögðu bara þegar það er tilbúið. En einnig kíkti ég í heimsókn til hennar Línu andamömmu minnar og það var alveg yndislegt að hitta hana, þar sem ég hef ekki hitt hana í langan langan tíma.
Á laugardagskvöldinu fórum við svo út að borða á La vita e belle og þar borðaði ég alveg hrikalega góðan mat. Við kíktum svo nokkrar á Vélsmiðjuna þar sem hljómsveitin Sixties var að spila. Þar var alveg heilmikið fjör og Eydís skellti sér á svið með hljómsveitinni og tók eitt lag með þeim. Þar var dansað til klukkan fjögur og ég verð að viðurkenna það að það var mjög sársaukafullt að labba heim, enda búin að dansa eins og vitleysingur og gjörsamlega búin í fótunum. Svo reif maður sig fram úr fyrir klukkan tíu og við vorum lögð af stað í fjörðinn fagra um klukkan 11.
Þangað til næst, túrilú,
Eydís

20. apríl 2008 klukkan 19:59
Eydís Bára Jóhannsdóttir
Eydís Bára Jóhannsdóttir

Langaði bara að segja þér hvað það var frábært að fá þig í heimsókn þó stutt væri. Gott að þú gast tekið á því á Vélsmiðjunni, vildi að ég hefði sé mína taka lagið. Knús og kossar frá gömlu í Bakkahlíðinni