23september

Loksins nýtt blogg!


Jæja, kannski það sé kominn tími til að henda inn nokkrum línum eftir nokkurra mánaða bloggpásu (en maður er búinn að fá hint frá nokkrum um að þetta gangi víst ekki lengur). Það er nú bara þannig að það er búið að vera gjörsamlega brjálað að gera hjá dömunni og lítill tími gefist til að henda inn línu.
Kristín frænka vildi fá að heyra eitthvað frá húsinu góða, Landamótum. En það er skemmst frá því að segja að þetta er bara yndislegasta hús í heimi og hér líður mér vel. Ég er búin að komast að því að þó að það sé lítið, þá er það nógu stórt til að halda kennarapartý, en það var prufukeyrt um síðustu helgi.
Sumarið gjörsamlega flaug frá manni. Ég var að vinna bæði í bankanum og á Skaftfelli, þannig að það var ekkert sumarfrí tekið í sumar. Ég verð nú að viðurkenna það að ég mæli ekki með því að taka ekkert frí, en ég er búin að ákveða það að vinna ekki svona mikið næsta sumar. Ég er farin að bíða spennt eftir jólafríinu.
Svo byrjaði maður náttúrulega í skólanum seinni partinn í ágúst og þar er sko líka meira en nóg að gera í kennslu, undirbúningi og ýmsu sem daman er búin að taka að sér. Já og fyrir utan það er ég komin í stjórn í Kennarasambandi Austurlands, þannig að það verður örugglega lítið um dauðann tíma. En þannig líður mér líka vel, þegar ég hef nóg fyrir stafni. Fyrir utan vinnuna er ég svo í Ceilidh-bandinu mínu, svo bíð ég eftir því að leikfélagið fari í gang. Ég er ekki enn búin að ákveða hvort að ég eigi að vera í kórnum í vetur, en það verður bara að koma í ljós.
Þrátt fyrir allar þessar annir í vinnu og félagslífi brá daman sér í borgina með Eygló og co. eina helgina og í bústað norður í Kjarnaskóg í góðra vina hópi og það var nú ekki leiðinlegt. Það var ágætt að breyta aðeins til og komast aðeins úr firðinum fagra svona helgi og helgi, þar sem ekki gafst tími til þess í sumar. 

Jæja góðir hálsar og aðrir hálsar, við segjum þetta gott í bili og það verður bara að koma í ljós hvort að það líður svona langur tími fram að næsta bloggi. Ég get ekki lofað neinu.
 

Við endum svo á lagi sem vekur upp gamlar minningar. Njótið vel
http://www.youtube.com/watch?v=wPOhyAEN0J8  

Knús og kossar úr firðinum fagra,
Eydís 
23. september 2008 klukkan 22:03
Eydís Bára Jóhannsdóttir
2 athugasemdir
04júlí

Rólegheit í kvöld!!!


Jæja, látum okkur nú sjá. Hvað hefur gerst frá síðustu færslu??? Jú, daman er búin að vera að vinna og vinna svo aðeins meira.
Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma götupartýinu góða. Það var haldið, þrátt fyrir að ekki færi mikið fyrir hlýindum. En það var þurrt, það var frekar fámennt, en góðmennt og mikið stuð. Það var borðað, drukkið, farið í leiki, sungið og trallað. Bara gaman. Um miðnætti var svo arkað á Láruna og fór Solla þar fremst í flokki með risatrjágrein úr garðinum sínum. Á Lárunni hélt djammið áfram, dansað og djammað fram eftir nóttu.
Ég, ásamt mömmu, Eygló og Sollu, skellti mér á opnunarhátíð Jazzhátíðarinnar, en hún var haldin í aðkomugöngum stöðvarhúss Fljótsdalsstöðvar. Þar var verið að frumflytja verkið Draumar eftir hann Einar Braga og búið var að semja dansverk við það líka. Þessir tónleikar voru vægast sagt stórkostlegir. Tær snilld.
Síðastliðinn þriðjudag skellti daman sér svo í leikhús á Egilsstöðum þar sem Frú Norma, í samstarfi við Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Leikfélag Seyðisfjarðar, frumsýndu leikritið Ventlasvín eftir Guðjón Sigvaldason. Þessi sýning var allt öðruvísi en allar aðrar leiksýningar sem maður hefur séð, en hún var alveg hrikalega skemmtileg. Ég hló hreinlega allan tímann.
Í kvöld eru annars bara huggulegheit, það voru keyptar pizzur á Skaftfelli og ég, Eygló systir og fjölskylda fórum út á Landamót og átum pizzu og svo súkkulaðibúðing í eftirrétt. Sem sagt sukkkvöld dauðans.
Á morgun er svo planið að fara heim til Sollu, sem liggur ökklabrotin á sjúkrahúsinu á Akureyri, og taka húsið hennar í gegn áður en hún kemur heim. En vonandi sleppur hún heim strax eftir helgina.
Um næstu helgi er svo Ceilidhbandið að fara að spila á ættarmóti á Skjöldólfsstöðum. Það hefur verið mjög lítið um æfingar undanfarið og þar sem Eydís er að vinna flest kvöldin í næstu viku, þá gefst ekki mikill tími til æfinga. En við reynum bara að gera það besta úr þessu. Við ættum að ná tveimur æfingum hér heima og svo einni á Skjöldólfsstöðum á laugardaginn. Ég hef fulla trú á því að þetta verði í fínu lagi.
Annars er bara allt við það sama. Blessað sumarið lætur enn bíða eftir sér. Veðurfræðingarnir eru eitthvað að spá góðu veðri næstu daga og vonandi stenst það.  


Við endum svo þessa færslu á broti úr verkinu Draumar eftir Einar Braga. Farið inn á
http://www.youtube.com/watch?v=N-0xkogebKU

Knús knús,
Eydís

04. júlí 2008 klukkan 23:27
Eydís Bára Jóhannsdóttir
1 athugasemd
19júní

Alltaf nóg að gera!


Góðan og blessaðan daginn öll sömul!
 

Mér fannst eins og ég yrði bara að henda inn nokkrum línum þar sem ekki hefur gefist mikill tími til þess svona undanfarið, enda hefur daman bara verið nokkuð busy svona undanfarið. Héðan úr firðinum fagra er allt gott að frétta. Það er ekki mjög hlýtt úti, en við erum a.m.k. ekki með neina ísbirni hér í kringum okkur.
Undirrituð er bara að vinna á fullu í „sumarfríinu“ sínu. Ég er að vinna bæði í bankanum og á Skaftfelli. Jafnvel þegar maður á fríhelgi er maður ekki í vandræðum með að koma sér í eitthvað, sbr. síðustu helgi. Um síðustu helgi átti daman sem sagt fríhelgi, á laugardeginum var ég að aðstoða Eygló systur með barnaafmæli og á sunnudeginum var ég að vinna í fermingarveislu í Mjóafirði. En ekki misskilja mig, ég er alls ekki að kvarta, það er bara gaman að hafa nóg fyrir stafni.
Svo erum við Solla þessa dagana að undirbúa götupartý sem verður haldið á Múlaveginum á laugardaginn. Veðurspáin mætti vera betri, en það á a.m.k. að vera þurrt og það er nú svona fyrir mestu. Annars ætti ég líka að vera á Akureyri um helgina, þar sem Sigrún vinkona og Hjálmar eru að fara að skíra litla stubbinn sem þau eignuðust í apríl. Þannig að Sigrún og Hjálmar ég sendi ykkur mínar bestu kveðjur norður og ég vildi að ég væri þarna hjá ykkur. 

En við skulum enda þessa færslu á snilldarlaginu Bahama með Ingó og veðurguðunum.
 

Kveðja,
Eydís  
http://www.youtube.com/watch?v=Ek8O6coqGE8&feature=related
19. júní 2008 klukkan 09:52
Eydís Bára Jóhannsdóttir
1 athugasemd
29maí

Loksins smá tími fyrir blogg!


Jæja gott fólk, þá er nú sennilega kominn tími á nýja bloggfærslu. Hér hefur ekki verið bloggað í laaaaaangan tíma og þið sem lítið hér inn verðið að fyrirgefa mér það. Það er nú bara þannig að undanfarið hefur hreinlega verið brjálað að gera og enginn tími til neins.            
Þá skal ég nú segja ykkur stuttlega frá því sem hefur verið að gerast í mínu lífi frá síðustu bloggfærslu. Eins og ég minntist á í síðustu færslu var ég farin að fá skít í hálsinn fyrir lokasýninguna á leikritinu og sem betur fer voru sýningarnar ekki fleiri, því að ég hef verið að hósta úr mér lifur og lungum síðan þá. En ég held að það sé nú batnandi núna, LOKSINS.
           
Annars er það að frétta að ég er flutt út á Landamótin mín og er það bara yndislegt. Ég hef nú reyndar verið lítið heima og eiginlega bara komið heim til þess að sofa. Ég hef ekki einu sinni sofið hér allar nætur þar sem maður hefur verið að sinna öðrum störfum, eins og móðurhlutverki fyrir Sollu og hjálpa Eygló systur að setja upp verslunina sína.
           
Eygló hefur sem sagt opnað verslun hér í firðinum fagra og kallast hún Verslunin Prýði. Hún opnaði sl. laugardag og það var mikið stress að koma henni í stand á réttum tíma, enda vorum við systurnar ásamt mömmu og pabba, ekkert búnar að sofa þegar hún opnaði klukkan 11 um morguninn. Eydís litla var svo vakandi allan laugardaginn og vakti til ca. 1 aðfaranótt sunnudagsins. Ég var sem sagt búin að vera vakandi í u.þ.b. 42 klukkustundir þegar ég fór loksins að sofa og ég get nú ekki sagt að ég mæli með því. Þegar ég vaknaði á sunnudeginum var eins og ég hafi verið á rokna djammi kvöldið áður og ég var gjörsamlega að deyja úr þreytu. En verslunin opnaði á réttum tíma og það var það sem skipti máli.
           
Svo fer skólanum að ljúka og flestir að fara í sumarfrí, en ekki hún Eydís, ónei, ónei. Daman er búin að ráða sig í tvær vinnur í sumar, annars vegar í bankanum og hins vegar í Skaftfelli, þannig að svo virðist vera sem það verði áfram nóg að gera. En það er bara hið besta mál. Manni leiðist a.m.k. ekki á meðan.
 

En jæja, við segjum þetta gott í bili og ég reyni að láta ekki líða svona langan tíma fram að næstu færslu.

Kveðja frá Landamótum,
Eydís
29. maí 2008 klukkan 22:13
Eydís Bára Jóhannsdóttir
2 athugasemdir
10maí

Sýningum lokið!


Jæja, þá er sýningum á leikritinu okkar, „Kallarðu þetta leikrit“, lokið. Lokasýningin var í gærkvöldi og gekk hún mjög vel, ca. 100 manns í salnum og frábær stemmning. Ég var nú reyndar dálítið stressuð á sýningunni þar sem að röddin var ekki alveg í fullkomnu lagi. Skítur í hálsi og svona og þar sem ég þurfti að syngja tvö lög hafði ég svolitlar áhyggjur af því að röddin myndi bresta en þetta hafðist allt saman. Ég var reyndar fegin að ekki skyldi vera sýning í kvöld þar sem að skíturinn í hálsinum eykst bara. En hvað um það,  eftir sýninguna var svo að sjálfsögðu farið á barinn og tekið smá djamm. Það er nú dálítið skrítin tilfinning að vera búin með sýningarnar. Engar sýningar og engar æfingar kvöld eftir kvöld. Hvað gerir maður þá? Ég er nú reyndar viss um að maður getur fundið sér eitthvað að gera. Ég hef nú yfirleitt ekki verið í vandræðum með að koma mér í alls konar hluti.
Svo fer að styttast í flutninga hjá dömunni og svona. Ég flyt sem sagt á Landamótin mín um næstu helgi og það verður alveg yndislegt að fara að koma sér fyrir þar, því að þar er bara gott að vera. Þá held ég að ég verði komin endanlega heim. Það fer svo sem aldrei illa um mann á hótel mömmu, en það verður samt yndislegt að vera út af fyrir sig.

En við förum að segja þetta gott í bili og ég læt heyra frá mér síðar. 

Bestu kveðjur og vonandi eigið þið yndislega hvítasunnuhelgi,

Eydís

 

10. maí 2008 klukkan 22:15
Eydís Bára Jóhannsdóttir
1 athugasemd
05maí

Fríkvöld, hvað er það?


Já viti menn, á ekki Eydís litla bara fríkvöld í kvöld. En það er eitthvað sem hefur ekki verið í dágóðan tíma. Nú er sem sagt leikæfingum lokið og við erum hálfnuð með sýningarnar, þ.e.a.s. við erum búin með tvær sýningar og tvær eftir. Maður hefur bara ekki heyrt neitt nema jákvæða hluti um þessa sýningu og er það bara gott. Frumsýningarkvöldið var bara frábært. Fullt af fólki, frábær salurinn og mikið hlegið. Svo var auðvitað smá djamm eftir frumsýningu, fyrst í Herðubreið og síðan var farið á Láruna þar sem var fullt út úr dyrum og mikil gleði. Síðan var önnur sýning í gærkvöldi og gekk hún mjög vel. Þó að það hafi ekki verið mjög margir í salnum, þá var stemmningin bara góð. Það hefur svo oft verið talað um það að önnur sýning sé klúður, en við hjá Leikfélagi Seyðisfjarðar erum sko löngu búin að afsanna þá kenningu. Nú hvet ég ykkur, sem eigið eftir að sjá þetta stykki nú eða ef þið viljið koma aftur, til að koma og sjá. Næsta sýning er miðvikudaginn 7. maí og lokasýning föstudaginn 9.maí og hefjast sýningarnar klukkan 20:00. 


Knús á línuna,
Eydís
05. maí 2008 klukkan 20:53
Eydís Bára Jóhannsdóttir
2 athugasemdir
02maí

Frumsýning framundan!


Já, það er sko ekkert öðruvísi. Það er bara alveg að bresta á með frumsýningu og ég verð nú að játa það að það er farið að votta örlítið fyrir frumsýningarskjálfta. Maður er búinn að vera á æfingum á hverju kvöldi í einhvern tíma og nú er komið að því að fólk fái að sjá afraksturinn. Ég er sem sagt búin að vera að æfa leikrit með leikfélagi Seyðisfjarðar og frumsýningin er annaðkvöld, laugardaginn 3. maí. Þetta verður svo sannarlega laaaaangur laugardagur, þar sem að generalprufan er líka á morgun. Ég kem sem sagt til með að flytja inn í Herðubreið í fyrramálið og þar verð ég þangað til frumsýningu er lokið, eða þangað til frumsýningarpartýi er lokið.
Þetta leikrit sem leikfélagið er að setja upp er frumsamið eftir ungan Seyðfirðing. Það var ákveðið að setja upp frumsamið leikrit í tilefni 50 ára afmælis leikfélagsins. Þetta leikrit ber heitið „Kallarðu þetta leikrit“ og fjallar um lítið leikfélag á Hjara veraldar, sem er að setja upp sakamálaleikrit með söngvum. Ég verð nú að játa það að þetta er mjög skemmtilegt leikrit og í því eru ýmsar óvæntar uppákomur. Þannig að ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að koma og sjá þetta stykki, en það verða eingöngu 4 sýningar sem er dreift á eina viku. Lokasýningin er föstudaginn 9. maí. 

Þangað til næst,

Eydís sem er að byrja að fá frum sýningarskjálfta

02. maí 2008 klukkan 23:09
Eydís Bára Jóhannsdóttir
2 athugasemdir
20apríl

Að lokinni Akureyrarferð!!!


Þá er maður kominn heim aftur eftir aðra helgina á Akureyri í röð. Í þetta skiptið var ég á ferð með kennurum Seyðisfjarðarskóla þar sem við sóttum ráðstefnu. En það var nú eitthvað fleira gert líka eins og gengur og gerist í svona ferðum. Á föstudagskvöldinu skellti ég mér í leikhús ásamt þeim Kötu, Jóhönnu og Unni. Við fórum að sjá leikritið Dubbeldusch og var það hin besta skemmtun. Á laugardaginn kíkti ég í heimsókn til Sigrúnar minnar, en bumbubúinn hennar er ekki enn kominn í heiminn, þrátt fyrir að Sigrún hafi lofað mér því að ég fengi að sjá lítið barn seinni helgina mína á Akureyri. En svona er þetta og litla krílið kemur að sjálfsögðu bara þegar það er tilbúið. En einnig kíkti ég í heimsókn til hennar Línu andamömmu minnar og það var alveg yndislegt að hitta hana, þar sem ég hef ekki hitt hana í langan langan tíma.
Á laugardagskvöldinu fórum við svo út að borða á La vita e belle og þar borðaði ég alveg hrikalega góðan mat. Við kíktum svo nokkrar á Vélsmiðjuna þar sem hljómsveitin Sixties var að spila. Þar var alveg heilmikið fjör og Eydís skellti sér á svið með hljómsveitinni og tók eitt lag með þeim. Þar var dansað til klukkan fjögur og ég verð að viðurkenna það að það var mjög sársaukafullt að labba heim, enda búin að dansa eins og vitleysingur og gjörsamlega búin í fótunum. Svo reif maður sig fram úr fyrir klukkan tíu og við vorum lögð af stað í fjörðinn fagra um klukkan 11.
 

Þangað til næst, túrilú,
Eydís
20. apríl 2008 klukkan 19:59
Eydís Bára Jóhannsdóttir
2 athugasemdir
16apríl

Flóin klikkaði ekki!!!


Halló allir!
 

Ég ákvað að skella nú inn smá bloggi, bara af því að ég er í svo góðu skapi og veðrið er svo gott. Það er nú svo sem bara allt við það sama á þessum bænum. Brjálað að gera hjá manni, leikfélag, kór, Ceilidhband og gaman.
Ég skrapp til Akureyrar um síðustu helgi með fjölskyldunni og við vorum í sumarhúsi í Kjarnaskógi sem var bara æðislegt. Þar var spilað, farið í heita pottinn og svona. Á laugardagskvöldið skellti familían sér svo í leikhús þar sem horft var á leikritið „Fló á skinni“. Þar var sko hlegið og hlegið og hlegið aðeins meira. Þetta er nú bara með skemmtilegri leikritum sem ég hef séð. Misskilningur út í eitt og leikararnir fóru gjörsamlega á kostum. Þarna eru bæði nýútskrifaðir leikarar og einnig leikarar með MIKLA reynslu. Mér finnst frábært hvað Leikfélag Akureyrar er að gefa ungum, nýútskrifuðum leikurum gott tækifæri og þeir gjörsamlega blómstra. Sem sagt ég mæli eindregið með því að fólk skelli sér á þessa sýningu, en það fara nú að verða síðustu forvöð þar sem sýningum lýkur á Akureyri 26. apríl. En svo verður reyndar farið með hana í Borgarleikhúsið í haust og ég hvet ykkur til að láta þetta brilliant leikrit ekki framhjá ykkur fara.
En svo um næstu helgi, þá er ferðinni aftur heitið norður til Akureyrar. Í þetta skipti verður maður ekki í fjölskylduferð, heldur í kennaraferð. Starfsfólk skólans er sem sagt að fara norður á ráðstefnu og þar verður án efa drukkinn eins og einn bjórar. Það verður bara stuð að skella sér í norðurferð með samstarfsfólki sínu. Ég fór í þessa ferð í fyrra, en vegna óviðráðanlegra orsaka tók undirrituð ekki þátt í neinu utan ráðstefnunnar. En það verður annar háttur á í þetta skiptið. 

Jæja, við förum að segja þetta gott í bili.
 

Þangað til næst,
kveðja,

Eydís

16. apríl 2008 klukkan 16:33
Eydís Bára Jóhannsdóttir
1 athugasemd
07apríl

Tímaleysi!!!


Jæja gott fólk!
 

Þá ákvað ég loksins að setjast niður og gefa mér tíma til að henda inn smá bloggi. En tími virðist nú vera eitthvað sem ég á ekki mjög mikið aukalega af. Það er nú bara þannig þessa dagana að það er gjörsamlega brjálað að gera hjá dömunni. Maður reynir auðvitað að sinna vinnunni sinni eftir bestu getu, svo eru leikæfingar, hljómsveitaræfingar, kóræfingar og fleira sem maður þarf að sinna í sínum frítíma. Það var meira að segja svo brjálað að gera hjá mér síðastliðna helgi að Eydís varð bara að gjöra svo vel og setjast niður til að skipuleggja helgina klukkutíma fyrir klukkutíma. Þeir sem þekkja til dömunnar vita væntanlega að hún er nú ekki sú allra skipulagðasta sem til er, en þarna var bara ekkert annað í boði. Ég setti niður plan og fylgdi því eftir og það gekk bara svona ljómandi vel. Ég er nú vön því að láta hlutina bara rúlla, án þess að ég sé mikið að pæla í þeim. Helgin var sem sagt gjörsamlega crazy og daman var orðin dálítið mikið þreytt þegar hún kom heim um kvöldmat á sunnudag. Þá var legið í sófanum með tærnar upp í loft, mikið sem það var nú gott.
En sem sagt lífið gengur bara sinn vanagang. Leikæfingar á fullu, kórinn að æfa fyrir sumardaginn fyrsta og svo skellir maður sér til Akureyrar næstu tvær helgar. Það á sko ekki eftir að vera leiðinlegt. 


En við segjum þetta gott í bili,
knús á línuna,
Eydís
07. apríl 2008 klukkan 23:08
Eydís Bára Jóhannsdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Bára Jóhannsdóttir
  • Staður: Seyðisfjörður
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Kennari
  • Um mig: Ég er bara ósköp venjulegur einstaklingur frá hinum fagra firði Seyðisfirði. Þar hef ég búið megnið af minni ævi. Ég flutti til Skotlands í júní 2007, en hef nú snúið aftur í fjörðinn fagra og starfa í skólanum þar.
  • Annað: Við þurfum ekki að eyða háum upphæðum í gjafir vegna þess að vináttan er besta gjöfin.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan